Biblían 1981
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu. |
| 2 |
| Gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu. |
| 3 |
| Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir. |
| 4 |
| Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér. |
| 5 |
| Ég minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna. |
| 6 |
| Ég breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér. |
| 7 |
| Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar. |
| 8 |
| Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína. |
| 9 |
| Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, ég flý á náðir þínar. |
| 10 |
| Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut. |
| 11 |
| Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns. |
| 12 |
| Lát þú óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar, ryð þeim öllum úr vegi, er að mér þrengja, því að ég er þjónn þinn. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/143.mp3
150
143