Biblían 2007
|
| 1 |
| Hallelúja. Gott er að syngja Guði vorum lof. Það er yndislegt, honum hæfir lofsöngur. |
| 2 |
| Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu Ísraels. |
| 3 |
| Hann græðir þá sem hafa sundurkramið hjarta og bindur um benjar þeirra. |
| 4 |
| Hann ákveður tölu stjarnanna, nefnir þær allar með nafni. |
| 5 |
| Mikill er Drottinn vor og voldugur í mætti sínum, speki hans ómælanleg. |
| 6 |
| Drottinn styður hjálparlausa en óguðlega fellir hann til jarðar. |
| 7 |
| Syngið Drottni þakkargjörð, leikið fyrir Guði vorum á gígju. |
| 8 |
| Hann hylur himininn skýjum, sér jörðinni fyrir regni, lætur gras spretta á fjöllunum, |
| 9 |
| gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum þegar þeir krunka. |
| 10 |
| Hann hefur ekki mætur á styrk hestsins, hrífst ekki af fráum fótum mannsins. |
| 11 |
| Drottinn hefur þóknun á þeim sem óttast hann, þeim sem setja von sína á miskunn hans. |
| 12 |
| Lofa Drottin, Jerúsalem, tigna þú Guð þinn, Síon, |
| 13 |
| því að hann hefur gert sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín sem í þér eru. |
| 14 |
| Hann stillir til friðar við landamæri þín, seður þig á úrvalshveiti. |
| 15 |
| Hann sendir boðskap sinn um jörðina, skjótt berst orð hans. |
| 16 |
| Hann gefur snjó eins og ull, stráir hrími sem ösku. |
| 17 |
| Hann stráir hagli sínu eins og brauðmylsnu, hver fær staðist frost hans? |
| 18 |
| Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása og vötnin renna. |
| 19 |
| Hann boðar Jakobi orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði. |
| 20 |
| Slíkt hefur hann ekki gert fyrir neina aðra þjóð, þær þekkja ekki lög hans. Hallelúja. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/147.mp3
150
147