Biblían 1981
|
| 1 |
| Halelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum, því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur. |
| 2 |
| Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael. |
| 3 |
| Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og bindur um benjar þeirra. |
| 4 |
| Hann ákveður tölu stjarnanna, kallar þær allar með nafni. |
| 5 |
| Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg. |
| 6 |
| Drottinn annast hrjáða, en óguðlega lægir hann að jörðu. |
| 7 |
| Syngið Drottni með þakklæti, leikið á gígju fyrir Guði vorum. |
| 8 |
| Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni, lætur gras spretta á fjöllunum. |
| 9 |
| Hann gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum, þegar þeir kalla. |
| 10 |
| Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins, eigi þóknun á fótleggjum mannsins. |
| 11 |
| Drottinn hefir þóknun á þeim er óttast hann, þeim er bíða miskunnar hans. |
| 12 |
| Vegsama Drottin, Jerúsalem, lofa þú Guð þinn, Síon, |
| 13 |
| því að hann hefir gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín, sem í þér eru. |
| 14 |
| Hann gefur landi þínu frið, seður þig á hinu kjarnbesta hveiti. |
| 15 |
| Hann sendir orð sitt til jarðar, boð hans hleypur með hraða. |
| 16 |
| Hann gefur snjó eins og ull, stráir út hrími sem ösku. |
| 17 |
| Hann sendir hagl sitt sem brauðmola, hver fær staðist frost hans? |
| 18 |
| Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása, og vötnin renna. |
| 19 |
| Hann kunngjörði Jakob orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði. |
| 20 |
| Svo hefir hann eigi gjört við neina þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/147.mp3
150
147