Biblían 2007
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Drottinn, hver fær að leita hælis í tjaldi þínu, hver má dveljast á þínu heilaga fjalli? |
| 2 |
| Sá sem gengur í flekkleysi og ástundar réttlæti og talar sannleik af hjarta, |
| 3 |
| sá sem ekki ber út róg með tungu sinni, gerir náunga sínum ekki illt og leiðir ekki skömm yfir nágranna sinn, |
| 4 |
| sá sem fyrirlítur þann sem illa breytir en heiðrar þá sem óttast Drottin, sá sem heldur eiða sína þótt það sé honum til tjóns, |
| 5 |
| sá sem ekki lánar fé sitt gegn vöxtum og þiggur ekki mútur í máli gegn saklausum. Sá sem þetta gerir er óhultur að eilífu. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/015.mp3
150
15