×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 16

1
Davíðsmiktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.
2
Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.“
3
Á hinum heilögu í landinu og hinum dýrlegu hef ég alla velþóknun mína.
4
Miklar eru þjáningar þeirra sem elta aðra guði. Ég vil ekki dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og ekki taka nöfn þeirra mér í munn.
5
Drottinn, þú ert hlutskipti mitt og minn afmældi bikar, þú heldur uppi hlut mínum.
6
Mér féllu að erfðahlut indælir staðir og arfleifð mín líkar mér vel.
7
Ég lofa Drottin sem gefur mér ráð, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.
8
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki.
9
Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur minn gleðst og líkami minn hvílist í friði
10
því að þú ofurselur helju ekki líf mitt, sýnir ekki gröfina þeim sem treystir þér.
11
Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar