Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa. |
| 3 |
| Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki. |
| 4 |
| Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra. |
| 5 |
| Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald. |
| 6 |
| Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt. |
| 7 |
| Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans. |
| 8 |
| Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran. |
| 9 |
| Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun. |
| 10 |
| Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát. |
| 11 |
| Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur. |
| 12 |
| Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér. |
| 13 |
| En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum! |
| 14 |
| Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti. |
| 15 |
| Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari! |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/019.mp3
150
19