|
| 1 |
|
| Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur. |
|
| 2 |
|
| Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg. |
|
| 3 |
|
| “Guð minn!” hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró. |
|
| 4 |
|
| Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels. |
|
| 5 |
|
| Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim, |
|
| 6 |
|
| til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar. |
|
| 7 |
|
| En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum. |
|
| 8 |
|
| Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið. |
|
| 9 |
|
| “Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!” |
|
| 10 |
|
| Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar. |
|
| 11 |
|
| Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn. |
|
| 12 |
|
| Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar. |
|
| 13 |
|
| Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig. |
|
| 14 |
|
| Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón. |
|
| 15 |
|
| Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér; |
|
| 16 |
|
| gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig. |
|
| 17 |
|
| Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið. |
|
| 18 |
|
| Ég get talið öll mín bein - þeir horfa á og hafa mig að augnagamni, |
|
| 19 |
|
| þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn. |
|
| 20 |
|
| En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar, |
|
| 21 |
|
| frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum. |
|
| 22 |
|
| Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig! |
|
| 23 |
|
| Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig! |
|
| 24 |
|
| Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs! Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels! |
|
| 25 |
|
| Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans. |
|
| 26 |
|
| Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim er óttast hann. |
|
| 27 |
|
| Snauðir munu eta og verða mettir, þeir er leita Drottins munu lofa hann. Hjörtu yðar lifni við að eilífu. |
|
| 28 |
|
| Endimörk jarðar munu minnast þess og hverfa aftur til Drottins og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans. |
|
| 29 |
|
| Því að ríkið heyrir Drottni, og hann er drottnari yfir þjóðunum. |
|
| 30 |
|
| Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir er hníga í duftið. En ég vil lifa honum, |
|
| 31 |
|
| niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni, |
|
| 32 |
|
| og lýð sem enn er ófæddur mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það. |
|
|
|
|