Biblían 2007
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, |
| 2 |
| Guð minn, þér treysti ég, lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér. |
| 3 |
| Enginn sem á þig vonar mun til skammar verða, þeir einir verða til skammar sem ótrúir eru að tilefnislausu. |
| 4 |
| Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. |
| 5 |
| Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig. |
| 6 |
| Minnst þú, Drottinn, miskunnar þinnar og gæsku sem er frá eilífð. |
| 7 |
| Minnst þú ekki æskusynda minna og afbrota, minnstu mín í elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn. |
| 8 |
| Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn. |
| 9 |
| Hann leiðir hógværa á vegi réttlætisins og vísar auðmjúkum veg sinn. |
| 10 |
| Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá sem halda sáttmála hans og boð. |
| 11 |
| Vegna nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína þó að hún sé mikil. |
| 12 |
| Hverjum þeim sem óttast Drottin vísar hann veginn sem hann skal velja. |
| 13 |
| Sjálfur mun hann búa við hamingju og niðjar hans munu erfa landið. |
| 14 |
| Drottinn sýnir þeim trúnað sem óttast hann og gerir þeim sáttmála sinn kunnan. |
| 15 |
| Ég beini augum sífellt til Drottins því að hann leysir fætur mína úr snörunni. |
| 16 |
| Snú þér til mín og ver mér náðugur því að ég er einmana og beygður. |
| 17 |
| Frelsa mig frá kvíða hjarta míns, leið mig úr nauðum. |
| 18 |
| Lít á neyð mína og eymd og fyrirgef allar syndir mínar. |
| 19 |
| Sjá, hve fjandmenn mínir eru margir, þeir hata mig ákaft. |
| 20 |
| Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig ekki verða til skammar því að hjá þér leita ég hælis. |
| 21 |
| Heilindi og ráðvendni verndi mig því að á þig vona ég. |
| 22 |
| Guð, frelsa Ísrael úr öllum nauðum hans. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/025.mp3
150
25