Biblían 1981
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Til þín, Drottinn, hrópa ég, þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér. Ef þú þegir við mér, verð ég sem þeir, er til grafar eru gengnir. |
| 2 |
| Heyr þú á grátbeiðni mína, er ég hrópa til þín, er ég lyfti höndum mínum til Hins allrahelgasta í musteri þínu. |
| 3 |
| Hríf mig eigi á burt með óguðlegum og með illgjörðamönnum, þeim er tala vinsamlega við náunga sinn, en hafa illt í hyggju. |
| 4 |
| Launa þeim eftir verkum þeirra, eftir þeirra illu breytni, launa þeim eftir verkum handa þeirra, endurgjald þeim það er þeir hafa aðhafst. |
| 5 |
| Því að þeir hyggja eigi á verk Drottins né handaverk hans, hann rífi þá niður og reisi þá eigi við aftur. |
| 6 |
| Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir heyrt grátbeiðni mína. |
| 7 |
| Drottinn er vígi mitt og skjöldur, honum treysti hjarta mitt. Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann. |
| 8 |
| Drottinn er vígi lýð sínum og hjálparhæli sínum smurða. |
| 9 |
| Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína, gæt þeirra og ber þá að eilífu. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/028.mp3
150
28