Biblían 1981
|
| 1 |
| Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum. |
| 2 |
| Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér. |
| 3 |
| Margir segja um mig: “Hann fær enga hjálp hjá Guði!” |
| 4 |
| En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt. |
| 5 |
| Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. |
| 6 |
| Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér. |
| 7 |
| Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar. |
| 8 |
| Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna. |
| 9 |
| Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/003.mp3
150
3