×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 30

1
Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.
2
Ég lofa þig, Drottinn, því að þú dróst mig upp úr djúpinu og lést óvini mína ekki hlakka yfir mér.
3
Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.
4
Drottinn, þú heimtir sál mína úr helju, lést mig halda lífi þegar aðrir gengu til grafar.
5
Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.
6
Andartak stendur reiði hans en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur en gleðisöngur að morgni.
7
Ég uggði ekki að mér og sagði: „Aldrei skriðnar mér fótur.“
8
Drottinn, af náð þinni gerðir þú fjall mitt að vígi en þegar þú huldir auglit þitt skelfdist ég.
9
Til þín, Drottinn, hrópaði ég og ákallaði Guð minn um miskunn:
10
„Hvaða ávinningur er af dauða mínum, af því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?
11
Heyr, Drottinn, ver mér náðugur, Drottinn, kom mér til hjálpar.“
12
Þú breyttir gráti mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,
13
því vil ég syngja þér lof og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar