Biblían 1981
|
| 1 |
| Davíðsmaskíl. Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin. |
| 2 |
| Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda. |
| 3 |
| Meðan ég þagði, tærðust bein mín, allan daginn kveinaði ég, |
| 4 |
| því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. |
| 5 |
| Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: “Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni,” og þú fyrirgafst syndasekt mína. |
| 6 |
| Þess vegna biðji þig sérhver trúaður, meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi. |
| 7 |
| Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum, með frelsisfögnuði umkringir þú mig. |
| 8 |
| Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga, ég vil kenna þér og hafa augun á þér: |
| 9 |
| Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar; með taum og beisli verður að temja þrjósku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki. |
| 10 |
| Miklar eru þjáningar óguðlegs manns, en þann er treystir Drottni umlykur hann elsku. |
| 11 |
| Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hjartahreinir! |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/032.mp3
150
32