Biblían 1981
|
| 1 |
| Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur. |
| 2 |
| Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu. |
| 3 |
| Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi. |
| 4 |
| Því að orð Drottins er áreiðanlegt, og öll verk hans eru í trúfesti gjörð. |
| 5 |
| Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins. |
| 6 |
| Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans. |
| 7 |
| Hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr. |
| 8 |
| Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann, |
| 9 |
| því að hann talaði - og það varð, hann bauð - þá stóð það þar. |
| 10 |
| Drottinn ónýtir ráð þjóðanna, gjörir að engu áform lýðanna, |
| 11 |
| en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns. |
| 12 |
| Sæl er sú þjóð er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar. |
| 13 |
| Drottinn lítur niður af himni, sér öll mannanna börn, |
| 14 |
| frá bústað sínum virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa, |
| 15 |
| hann sem myndað hefir hjörtu þeirra allra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra. |
| 16 |
| Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt. |
| 17 |
| Svikull er víghestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki. |
| 18 |
| En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans. |
| 19 |
| Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri. |
| 20 |
| Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur. |
| 21 |
| Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér. |
| 22 |
| Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/033.mp3
150
33