×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 36

1
Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.
2
Syndin talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.
3
Honum finnst mikið til um sjálfan sig, meira en svo að hann sjái og hati synd sína.
4
Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta rétt.
5
Í hvílu sinni hyggur hann á illt, fetar vonda vegu og forðast eigi hið illa.
6
Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.
7
Réttlæti þitt er sem hæstu fjöll, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.
8
Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.
9
Þau seðjast af nægtum húss þíns og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðssemda þinna
10
því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
11
Lát miskunn þína haldast við þá sem þekkja þig og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.
12
Lát eigi hrokafulla traðka á mér eða hrekja mig burt.
13
Þar eru illvirkjarnir fallnir, þeim er steypt um koll og fá ekki risið upp aftur.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar