|
| 1 |
|
| Davíðssálmur. Ver eigi bráður þeim sem illt vinna, öfunda eigi þá sem ranglæti fremja |
|
| 2 |
|
| því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir. |
|
| 3 |
|
| Treyst Drottni og ger gott, þá muntu óhultur búa í landinu. |
|
| 4 |
|
| Njót gleði í Drottni, þá veitir hann þér það sem hjarta þitt þráir. |
|
| 5 |
|
| Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. |
|
| 6 |
|
| Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag. |
|
| 7 |
|
| Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann, ver eigi of bráður vegna þess manns sem vel gengur eða þess sem illu veldur. |
|
| 8 |
|
| Lát af reiði, slepp heiftinni, ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins. |
|
| 9 |
|
| Því að illvirkjum verður tortímt en þeir sem vona á Drottin fá landið til eignar. |
|
| 10 |
|
| Innan stundar er hinn óguðlegi horfinn, ef þú leitar hans er hann ekki að finna. |
|
| 11 |
|
| En hinir hógværu fá landið til eignar og gleðjast yfir miklu gengi. |
|
| 12 |
|
| Hinn óguðlegi bruggar réttlátum vélráð og gnístir tönnum gegn honum. |
|
| 13 |
|
| Drottinn hlær að honum því að hann sér að dagur hans kemur. |
|
| 14 |
|
| Óguðlegir bregða sverði og spenna boga sína til þess að fella hinn umkomulausa og snauða, til þess að deyða hina ráðvöndu. |
|
| 15 |
|
| En sverð þeirra munu rista þeirra eigin hjörtu og bogar þeirra munu brotnir verða. |
|
| 16 |
|
| Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra óguðlegra |
|
| 17 |
|
| því að armur óguðlegra mun brotinn en réttláta styður Drottinn. |
|
| 18 |
|
| Drottinn hefur gætur á dögum flekklausra og arfleifð þeirra varir að eilífu. |
|
| 19 |
|
| Á vondum tímum verða þeir ekki til skammar, í hallæri hljóta þeir saðning. |
|
| 20 |
|
| En hinir óguðlegu munu farast. Óvinir Drottins eru sem blóm á engi, þeir hverfa, eins og reykur hverfa þeir. |
|
| 21 |
|
| Guðlaus maður tekur lán og borgar ekki en réttlátur maður er mildur og örlátur. |
|
| 22 |
|
| Þeir sem Drottinn blessar fá landið til eignar en hinum bannfærðu verður tortímt. |
|
| 23 |
|
| Drottinn stýrir skrefum mannsins þegar hann hefur þóknun á vegferð hans. |
|
| 24 |
|
| Þó að hann hrasi fellur hann ekki flatur því að Drottinn heldur í hönd hans. |
|
| 25 |
|
| Ungur var ég og gamall er ég orðinn en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn eða niðja hans biðja sér matar. |
|
| 26 |
|
| Ætíð er hann mildur og fús til að lána og niðjar hans verða öðrum til blessunar. |
|
| 27 |
|
| Forðastu illt en ger gott, þá muntu eiga bústað um aldur |
|
| 28 |
|
| því að Drottinn hefur mætur á réttlæti og yfirgefur eigi sína trúuðu. Þeir verða að eilífu varðveittir en niðjar óguðlegra upprættir. |
|
| 29 |
|
| Réttlátir fá landið til eignar og búa þar ævinlega. |
|
| 30 |
|
| Munnur hins réttláta mælir speki og tunga hans boðar réttlæti. |
|
| 31 |
|
| Lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur. |
|
| 32 |
|
| Guðlaus maður situr um réttlátan og sækist eftir lífi hans. |
|
| 33 |
|
| En Drottinn ofurselur hann ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi. |
|
| 34 |
|
| Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, hann mun hefja þig upp, að þú erfir landið, og þú munt sjá guðleysingjum tortímt. |
|
| 35 |
|
| Ég hef séð óguðlegan ofstopamann breiða úr sér sem laufmikið tré í gróðurreit sínum. |
|
| 36 |
|
| Ég gekk þar hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, ég leitaði hans en hann var hvergi að finna. |
|
| 37 |
|
| Gef gætur að hinum ráðvanda og horfðu til hins grandvara því að friðsamir menn eiga framtíðina fyrir sér |
|
| 38 |
|
| en allir syndarar farast, óguðlegir eiga sér enga framtíð. |
|
| 39 |
|
| Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum. |
|
| 40 |
|
| Drottinn liðsinnir þeim og bjargar, frelsar þá frá óguðlegum og bjargar þeim því að þeir leituðu athvarfs hjá honum. |
|
|
|
|