Biblían 1981
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Minningarljóð. |
| 2 |
| Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni. |
| 3 |
| Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér. |
| 4 |
| Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar. |
| 5 |
| Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar. |
| 6 |
| Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar. |
| 7 |
| Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan. |
| 8 |
| Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum. |
| 9 |
| Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans. |
| 10 |
| Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér. |
| 11 |
| Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér. |
| 12 |
| Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri. |
| 13 |
| Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn. |
| 14 |
| En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn, |
| 15 |
| ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans. |
| 16 |
| Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn, |
| 17 |
| því að ég segi: “Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.” |
| 18 |
| Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum. |
| 19 |
| Ég játa misgjörð mína, harma synd mína, |
| 20 |
| og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu. |
| 21 |
| Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er. |
| 22 |
| Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér, |
| 23 |
| skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/038.mp3
150
38