Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans, eftir Jedútún. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Ég sagði: “Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig.” |
| 3 |
| Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist. |
| 4 |
| Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði: |
| 5 |
| “Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er. |
| 6 |
| Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn. |
| 7 |
| Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur.” |
| 8 |
| Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér. |
| 9 |
| Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti. |
| 10 |
| Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað. |
| 11 |
| Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar. |
| 12 |
| Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. |
| 13 |
| Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir. |
| 14 |
| Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/039.mp3
150
39