Biblían 2007
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Svara mér þegar ég hrópa, þú, Guð réttlætis míns. Þá er að mér þrengdi rýmkaðir þú um mig. Miskunna mér og heyr bæn mína. |
| 3 |
| Þér menn: Hve lengi hyggist þér veitast að sæmd minni, elska hégómann og leita til lyginnar? |
| 4 |
| Vitið að Drottinn er náðugur þeim sem honum er trúr, Drottinn heyrir er ég hrópa til hans. |
| 5 |
| Skelfist en syndgið ekki, hugleiðið þetta í hvílum yðar og verið hljóðir. |
| 6 |
| Færið réttar fórnir og treystið Drottni. |
| 7 |
| Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ Drottinn, lát ljós auglitis þíns lýsa yfir oss. |
| 8 |
| Þú hefur glatt hjarta mitt meira en aðrir gleðjast yfir gnægð korns og víns. |
| 9 |
| Í friði leggst ég til hvíldar og sofna því að þú einn, Drottinn, lætur mig hvíla óhultan í náðum. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/004.mp3
150
4