×

Biblían 1981

SÁLMARNIR 4

1
Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2
Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3
Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar?
4
Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5
Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir.
6
Færið réttar fórnir og treystið Drottni.
7
Margir segja: “Hver lætur oss hamingju líta?” Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8
Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9
Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Icelandic Bible 1981
Icelandic Bible Icelandic Bible Society, 1981
:
Vista Skýringar