Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. |
| 3 |
| Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans. |
| 4 |
| Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm. |
| 5 |
| Ég sagði: “Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér.” |
| 6 |
| Óvinir mínir biðja mér óbæna: “Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?” |
| 7 |
| Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga. |
| 8 |
| Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa: |
| 9 |
| “Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar.” |
| 10 |
| Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér. |
| 11 |
| En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim. |
| 12 |
| Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér. |
| 13 |
| Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. |
| 14 |
| Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/041.mp3
150
41