×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 43

1
Lát mig ná rétti mínum, Guð, sæktu mál mitt gegn miskunnarlausri þjóð, bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.
2
Því að þú ert sá Guð sem er mér vígi, hví hefur þú útskúfað mér, hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?
3
Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig, þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga, til bústaðar þíns,
4
svo að ég megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs, minnar fagnandi gleði, og lofa þig undir hörpuslætti, Guð, þú Guð minn.
5
Hví ert þú buguð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar