1
Til söngstjórans. Kóraítamaskíl.
2
Guð, með eigin eyrum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáðum sem þú drýgðir á dögum þeirra, á löngu liðnum tímum.
3
Þú stökktir burt þjóðum en gróðursettir feðurna, þú lékst lýði harðlega en lést þá breiða úr sér.
4
Ekki unnu þeir landið með sverðum sínum og ekki hjálpaði armur þeirra þeim heldur hægri hönd þín og armur og ljómi auglitis þíns því að þú hafðir þóknun á þeim.
5
Þú ert konungur minn og Guð minn, bjóð þú að Jakob sigri.
6
Með þinni hjálp leggjum vér andstæðinga vora að velli, með nafni þínu troðum vér fótum þá sem gegn oss rísa.
7
Ég treysti ekki boga mínum og sverð mitt veitir mér ekki sigur
8
heldur veittir þú oss sigur á óvinum vorum og lætur þá sem oss hata verða til skammar.
9
Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu.
10
En nú hefur þú hafnað oss og niðurlægt, þú fórst ekki út með hersveitum vorum.
11
Þú lést oss hörfa undan óvinum og hatursmenn vorir taka herfang.
12
Þú fórst með oss eins og sláturfé og tvístraðir oss meðal þjóðanna,
13
þú seldir lýð þinn fyrir gjafverð og barst ekkert úr býtum.
14
Þú lést nágranna vora smána oss, þá sem umhverfis búa hafa oss að háði og spotti.
15
Þú gerðir afdrif vor að orðtaki meðal þjóðanna, lést þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.
16
Stöðugt stendur smán mín mér fyrir sjónum, andlit mitt er hulið skömm
17
vegna orða þeirra sem hæða mig og lasta frammi fyrir hefnigjörnum óvini.
18
Allt þetta er yfir oss komið, þó höfðum vér ekki gleymt þér og ekki rofið sáttmála þinn.
19
Hjarta vort hefur hvorki vikið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum,
20
samt hefur þú brotið oss niður, þar sem sjakalarnir hafast við, og hulið oss niðamyrkri.
21
Hefðum vér gleymt nafni Guðs vors og hafið upp hendur til framandi guðs,
22
hefði Guð þá ekki orðið þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?
23
Það er þín vegna að vér erum stöðugt felldir, að vér erum metnir sem sláturfé.
24
Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Rís upp, útskúfa oss eigi um aldur.
25
Hví hylur þú auglit þitt, gleymir neyð vorri og þrengingu?
26
Sál vor er beygð í duftið, líkaminn loðir við jörðu.
27
Rís upp, veit oss lið, frelsa oss sakir miskunnar þinnar.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society