Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. |
| 2 |
| Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. |
| 3 |
| Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins. |
| 4 |
| Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. |
| 5 |
| Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta. |
| 6 |
| Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi. |
| 7 |
| Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði. |
| 8 |
| Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. |
| 9 |
| Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu. |
| 10 |
| Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi. |
| 11 |
| “Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.” |
| 12 |
| Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/046.mp3
150
46