Biblían 2007
|
| 1 |
| Ljóð. Kóraítasálmur. |
| 2 |
| Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg Guðs vors. |
| 3 |
| Hans heilaga fjall, sem gnæfir hátt og fagurt, er allri jörðu gleði, Síonarfjall yst í norðri, borg hins mikla konungs. |
| 4 |
| Guð hefur í höllum hennar kunngjört sig sem vígi |
| 5 |
| því að konungar söfnuðust saman, sóttu fram allir sem einn. |
| 6 |
| Þegar þeir litu upp urðu þeir agndofa, skelfdust og flýðu. |
| 7 |
| Þar greip þá felmtur sem angist jóðsjúka konu. |
| 8 |
| Með austanvindinum brýtur þú Tarsisskipin. |
| 9 |
| Það sem vér áður heyrðum höfum vér nú séð í borg Drottins hersveitanna, borg Guðs vors. Guð lætur hana standa að eilífu. |
| 10 |
| Vér ígrundum, Guð, elsku þína í musteri þínu. |
| 11 |
| Eins og nafn þitt, Guð, hljómar lofgjörð um þig allt til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis. |
| 12 |
| Síonarfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna. |
| 13 |
| Gangið umhverfis Síon, gangið kringum hana, teljið turna hennar, |
| 14 |
| skoðið borgarmúrana vandlega, virðið fyrir yður virkin svo að þér getið sagt komandi kynslóð |
| 15 |
| að þannig sé Drottinn, Guð vor, hann mun leiða oss um aldur og ævi. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/048.mp3
150
48