Biblían 2007
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum. |
| 3 |
| Heyr þú hróp mitt, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég. |
| 4 |
| Á morgnana heyrir þú ákall mitt, Drottinn, á morgnana færi ég þér fórn mína og bíð þín. |
| 5 |
| Þú ert ekki guð sem gleðst yfir ranglæti, því geta vondir menn ekki leitað skjóls hjá þér. |
| 6 |
| Dramblátir standast ekki fyrir augum þínum, illvirkja hatar þú. |
| 7 |
| Þú tortímir lygurum. Drottinn hefur andstyggð á blóðþyrstum og svikurum. |
| 8 |
| En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér. |
| 9 |
| Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, ger sléttan veg þinn fyrir mér. |
| 10 |
| Sannleikur er ekki í munni þeirra, hugur þeirra er spilltur, kok þeirra opin gröf, með tungunni hræsna þeir. |
| 11 |
| Guð, dæm þá seka og lát þá falla á eigin bragði. Hrek þá burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra því að þeir hafa risið gegn þér. |
| 12 |
| Allir, sem leita hælis hjá þér, munu gleðjast, þeir fagna um aldur. Þú skýlir þeim og þeir sem elska nafn þitt fagna yfir þér |
| 13 |
| því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/005.mp3
150
5