×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 50

1
Asafssálmur. Guð, Drottinn Guð, talar, kallar á jörðina frá sólarupprás til sólarlags.
2
Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð.
3
Guð vor kemur og þegir ekki, fyrir honum fer eyðandi eldur og um hann geisar stormur.
4
Hann kallar á himininn uppi og á jörðina til að dæma lýð sinn:
5
„Stefnið þeim saman sem eru mér trúir, sem gera við mig sáttmála með fórn.“
6
Himinninn boði réttlæti hans því að Guð er sá sem dæmir.
7
„Heyr, þjóð mín, því að ég ætla að tala, Ísrael, ég ætla að vitna gegn þér. Ég er Guð, Guð þinn.
8
Ég álasa þér ekki fyrir sláturfórnir þínar og brennifórnir þínar eru stöðugt frammi fyrir mér.
9
Ég þarf ekki að taka naut úr fjósi þínu eða geithafra úr stíu þinni
10
því að öll skógardýrin eru mín og skepnurnar á fjöllunum þúsund.
11
Ég þekki alla fugla á fjöllunum og það sem á mörkinni hrærist er mitt.
12
Væri ég svangur segði ég þér ekki frá því því að jörðin er mín og allt sem á henni er.
13
Et ég nautakjöt eða drekk ég hafrablóð?
14
Færðu Guði þakkarfórn og efndu heit þín við Hinn hæsta.
15
Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég mun frelsa þig og þú skalt vegsama mig.“
16
En við hinn óguðlega segir Guð: „Hví þylur þú boðorð mín og tekur sáttmála minn þér í munn
17
þar sem þú hatar aga og snýrð baki við orðum mínum?
18
Sjáir þú þjóf leggurðu lag þitt við hann og hefur samneyti við hórkarla.
19
Þú lætur illt umtal þér um munn fara og tunga þín temur sér lygar.
20
Þú situr og níðir bróður þinn, rægir son móður þinnar.
21
Þetta gerðir þú og ég var hljóður, þú taldir mig vera eins og þú ert. Ég ávíta þig og leiði þér þetta fyrir sjónir.“
22
Hyggið að þessu, þér sem gleymið Guði, ella ríf ég yður sundur og enginn er til bjargar.
23
Sá sem færir þakkarfórn heiðrar mig og þann sem breytir grandvarlega læt ég sjá hjálpræði Guðs.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar