Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð, |
| 2 |
| þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks. |
| 3 |
| Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga! |
| 4 |
| Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur! |
| 5 |
| Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli. |
| 6 |
| Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga! |
| 7 |
| Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda. |
| 8 |
| Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum: |
| 9 |
| “Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni.” |
| 10 |
| En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi. |
| 11 |
| Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/052.mp3
150
52