Biblían 2007
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð |
| 2 |
| þegar Sifítar komu og sögðu við Sál: „Davíð felur sig hjá oss.“ |
| 3 |
| Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum. |
| 4 |
| Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns. |
| 5 |
| Erlendir fjandmenn hafa ráðist gegn mér og ofbeldismenn sækjast eftir lífi mínu, eigi hafa þeir Guð fyrir augum. |
| 6 |
| Sjá, Guð er hjálp mín, Drottinn er styrkur minn. |
| 7 |
| Bölið bitni á fjandmönnum mínum, eyddu þeim, Drottinn, sakir trúfesti þinnar. |
| 8 |
| Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, sem er gott, |
| 9 |
| því að það hefur frelsað mig úr hverri neyð og auga mitt hlakkar yfir fjandmönnum mínum. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/054.mp3
150
54