×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 57

1
Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð þá er hann flýði inn í hellinn undan Sál.
2
Ver mér náðugur, Guð, ver mér náðugur því að hjá þér leita ég hælis, í skugga vængja þinna leita ég hælis þar til voðinn er liðinn hjá.
3
Ég hrópa til Guðs, Hins hæsta, til Guðs sem reynist mér vel.
4
Hann sendir hjálp frá himnum þegar sá er ofsækir mig hæðir mig. Guð mun senda náð sína og trúfesti.
5
Ég ligg innan um ljón sem hungrar í menn, tennur þeirra eru spjót og örvar, tungur þeirra bitur sverð.
6
Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.
7
Þeir lögðu net fyrir fætur mér og beygðu sál mína, þeir grófu mér gryfju en féllu sjálfir í hana.
8
Hjarta mitt er stöðugt, Guð, hjarta mitt er stöðugt. Ég vil syngja og leika.
9
Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
10
Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna
11
því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna.
12
Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar