Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni. |
| 3 |
| Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast. |
| 4 |
| Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn - hversu lengi? |
| 5 |
| Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar. |
| 6 |
| Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju? |
| 7 |
| Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt. |
| 8 |
| Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna. |
| 9 |
| Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína. |
| 10 |
| Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni. |
| 11 |
| Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/006.mp3
150
6