Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, |
| 2 |
| þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns. |
| 3 |
| Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss - snú þér aftur að oss. |
| 4 |
| Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar. |
| 5 |
| Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín. |
| 6 |
| Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. |
| 7 |
| Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast. |
| 8 |
| Guð hefir sagt í helgidómi sínum: “Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal. |
| 9 |
| Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn. |
| 10 |
| Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.” |
| 11 |
| Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm? |
| 12 |
| Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum. |
| 13 |
| Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt. |
| 14 |
| Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/060.mp3
150
60