Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins. |
| 3 |
| Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna, |
| 4 |
| er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng |
| 5 |
| til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir. |
| 6 |
| Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: “Hver ætli sjái það?” |
| 7 |
| Þeir upphugsa ranglæti: “Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!” því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla. |
| 8 |
| Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir, |
| 9 |
| og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið. |
| 10 |
| Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans. |
| 11 |
| Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/064.mp3
150
64