Biblían 2007
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. |
| 2 |
| Þér ber lofsöngur, Guð á Síon, og við þig séu heitin efnd. |
| 3 |
| Þú, sem heyrir bænir, til þín leita allir menn. |
| 4 |
| Þegar misgjörðir vorar verða oss um megn fyrirgefur þú oss. |
| 5 |
| Sæll er sá sem þú velur og lætur nálgast þig, hann fær að dveljast í forgörðum þínum. Vér mettumst af gæðum húss þíns, heilagleik musteris þíns. |
| 6 |
| Þú bænheyrir oss af réttlæti með ógnvekjandi verkum, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra endimarka jarðarinnar og fjarlægra stranda, |
| 7 |
| þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika, |
| 8 |
| þú lægir brimgný hafanna, öldugnýinn og háreysti þjóðanna. |
| 9 |
| Þeir sem búa við endimörk jarðar skelfast máttarverk þín, austrið og vestrið lætur þú fagna. |
| 10 |
| Þú annast landið og vökvar það, fyllir það auðlegð. Lækur Guðs er bakkafullur, þú sérð mönnum fyrir korni því að þannig hefur þú gert landið úr garði. |
| 11 |
| Plógförin á jörðinni gegnvætir þú, sléttar plægt land, mýkir jarðveginn með regnskúrum, blessar það sem úr honum vex. |
| 12 |
| Þú krýndir árið með gæsku þinni, vagnspor þín drjúpa af feiti. |
| 13 |
| Beitilöndin í auðninni gleðjast, hæðirnar gyrðast fögnuði, |
| 14 |
| hagarnir klæðast hjörðum og dalirnir þekjast korni, allt fagnar og syngur. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/065.mp3
150
65