Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. |
| 2 |
| Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, |
| 3 |
| svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða. |
| 4 |
| Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa. |
| 5 |
| Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. |
| 6 |
| Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa. |
| 7 |
| Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. |
| 8 |
| Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/067.mp3
150
67