Biblían 2007
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafssálmur. Ljóð. |
| 2 |
| Guð gerði sig kunnan í Júda, nafn hans er mikið í Ísrael. |
| 3 |
| Tjaldbúð hans er í Salem, bústaður hans á Síon |
| 4 |
| þar sem hann braut leiftrandi örvar, skjöld og sverð og önnur vopn. |
| 5 |
| Ógnvekjandi ert þú, tignarlegri en hin öldnu fjöll. |
| 6 |
| Hugrakkir menn voru rændir, þeir sofnuðu svefni sínum, hendurnar brugðust hetjunum. |
| 7 |
| Fyrir ógn þinni, Jakobs Guð, misstu hestar og vagnar mátt sinn. |
| 8 |
| Þú ert ógnvekjandi, hver fær staðist reiði þína? |
| 9 |
| Þú kunngjörir dóm þinn frá himni, jörðin skelfist og þagnar |
| 10 |
| þegar Guð rís upp til að halda dóm, hjálpa öllum hrjáðum á jörðu. |
| 11 |
| Reiði manna snýst í þökk til þín, þeir sem eftir verða munu sjá það og fagna þér. |
| 12 |
| Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar, allir umhverfis hann skulu færa gjafir hinum óttalega, |
| 13 |
| hann brýtur niður hugmóð höfðingjanna, ógnar konungum jarðarinnar. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/076.mp3
150
76