Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs-sálmur. |
| 2 |
| Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín. |
| 3 |
| Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi. |
| 4 |
| Ég minnist Guðs og kveina, ég styn, og andi minn örmagnast. |
| 5 |
| Þú heldur uppi augnalokum mínum, mér er órótt og ég má eigi mæla. |
| 6 |
| Ég í huga fyrri daga, ár þau sem löngu eru liðin, |
| 7 |
| ég minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar. |
| 8 |
| Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur? |
| 9 |
| Er miskunn hans lokið um eilífð, fyrirheit hans þrotin um aldir alda? |
| 10 |
| Hefir Guð gleymt að sýna líkn, byrgt miskunn sína með reiði? |
| 11 |
| Þá sagði ég: “Þetta er kvöl mín, að hægri hönd Hins hæsta hefir brugðist.” |
| 12 |
| Ég víðfrægi stórvirki Drottins, ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum, |
| 13 |
| ég íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín. |
| 14 |
| Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill Guð sem Drottinn? |
| 15 |
| Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna. |
| 16 |
| Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. |
| 17 |
| Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu. |
| 18 |
| Vatnið streymdi úr skýjunum, þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu. |
| 19 |
| Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði. |
| 20 |
| Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn, og spor þín urðu eigi rakin. |
| 21 |
| Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð fyrir Móse og Aron. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/077.mp3
150
77