|
| 1 |
|
| Til söngstjórans. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur. |
|
| 2 |
|
| Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð. |
|
| 3 |
|
| Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar! |
|
| 4 |
|
| Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. |
|
| 5 |
|
| Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns? |
|
| 6 |
|
| Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka. |
|
| 7 |
|
| Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss. |
|
| 8 |
|
| Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. |
|
| 9 |
|
| Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann, |
|
| 10 |
|
| þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið. |
|
| 11 |
|
| Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans. |
|
| 12 |
|
| Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins. |
|
| 13 |
|
| Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin? |
|
| 14 |
|
| Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann. |
|
| 15 |
|
| Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa |
|
| 16 |
|
| og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa. |
|
| 17 |
|
| Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir. |
|
| 18 |
|
| Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa, |
|
| 19 |
|
| þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt. |
|
| 20 |
|
| Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. |
|
|
|
|