Biblían 2007
|
| 1 |
| Ljóð. Asafssálmur. |
| 2 |
| Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull, ó Guð, né aðgerðalaus. |
| 3 |
| Því sjá, óvinir þínir gera hark og hatursmenn þínir reigja sig. |
| 4 |
| Þeir sitja á svikráðum við lýð þinn, leggja á ráðin gegn þeim sem þú verndar. |
| 5 |
| Þeir segja: „Komið. Vér skulum afmá þá sem þjóð svo að nafns Ísraels verði ekki framar minnst.“ |
| 6 |
| Þeir voru einhuga um ráðagerð sína og gerðu bandalag gegn þér: |
| 7 |
| Edómítar og Ísmaelítar, Móabítar og Hagrítar, |
| 8 |
| Gebal og Ammón og Amalek, Filistear ásamt Týrusbúum. |
| 9 |
| Assúr sameinast þeim einnig og styður Lots niðja með armi sínum. |
| 10 |
| Farðu með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk, |
| 11 |
| þeim var gereytt við Endór, þeir urðu áburður á jörðina. |
| 12 |
| Farðu með leiðtoga þeirra eins og Óreb og Seeb, alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna |
| 13 |
| sem sögðu: „Vér skulum vinna haglendi Guðs.“ |
| 14 |
| Guð minn, ger þá sem skrælnaða þistla, sem hálmleggi fyrir vindi. |
| 15 |
| Eins og eldur, sem brennir skóginn, og logi, sem svíður fjöllin, |
| 16 |
| svo skaltu elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum. |
| 17 |
| Lát andlit þeirra roðna af skömm svo að þeir leiti nafns þíns, Drottinn. |
| 18 |
| Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá tortímast með skömm |
| 19 |
| svo að þeir játi að þú, sem berð nafnið Drottinn, þú einn ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/083.mp3
150
83