Biblían 1981
|
| 1 |
| Ljóð. Asafs-sálmur. |
| 2 |
| Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð! |
| 3 |
| Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið, |
| 4 |
| þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir. |
| 5 |
| Þeir segja: “Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!” |
| 6 |
| Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag: |
| 7 |
| Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar, |
| 8 |
| Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum. |
| 9 |
| Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum. |
| 10 |
| Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk, |
| 11 |
| þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina. |
| 12 |
| Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna, |
| 13 |
| þá er sögðu: “Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs.” |
| 14 |
| Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi. |
| 15 |
| Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin, |
| 16 |
| svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum. |
| 17 |
| Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn! |
| 18 |
| Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast, |
| 19 |
| að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/083.mp3
150
83