×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 86

1
Bæn Davíðs. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig því að ég er hjálparvana og snauður.
2
Vernda líf mitt því að ég er þér trúr. Þú ert Guð minn, hjálpa þjóni þínum sem treystir þér.
3
Ver mér náðugur, Drottinn, því að ég ákalla þig allan daginn.
4
Lát þjón þinn fagna því að ég hef sál mína til þín.
5
Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.
6
Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum að grátbeiðni minni.
7
Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig.
8
Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem verk þín.
9
Allar þjóðir, sem þú hefur skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt
10
því að þú ert mikill og gerir undraverk, þú einn ert Guð.
11
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu
13
því að miskunn þín er mikil við mig, þú hefur frelsað sál mína frá djúpi heljar.
14
Guð, ofstopamenn réðust á mig, hópur ofbeldismanna sóttist eftir lífi mínu en þig höfðu þeir ekki fyrir augum.
15
En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður, gæskuríkur og harla trúfastur.
16
Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17
Gef mér tákn um gæsku þína svo að hatursmenn mínir horfi á það sneyptir að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar