Biblían 1981
|
| 1 |
| Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að ég er hrjáður og snauður. |
| 2 |
| Vernda líf mitt, því að ég er helgaður þér, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér. |
| 3 |
| Ver mér náðugur, Drottinn, því þig ákalla ég allan daginn. |
| 4 |
| Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína. |
| 5 |
| Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig. |
| 6 |
| Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni. |
| 7 |
| Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig, því að þú bænheyrir mig. |
| 8 |
| Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk. |
| 9 |
| Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt. |
| 10 |
| Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð! |
| 11 |
| Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. |
| 12 |
| Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu, |
| 13 |
| því að miskunn þín er mikil við mig, og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi Heljar. |
| 14 |
| Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum. |
| 15 |
| En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur. |
| 16 |
| Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar. |
| 17 |
| Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/086.mp3
150
86