Biblían 1981
|
| 1 |
| Kóraíta-sálmur. Ljóð. |
| 2 |
| Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum, hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs. |
| 3 |
| Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. |
| 4 |
| Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar. |
| 5 |
| En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana. |
| 6 |
| Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar. |
| 7 |
| Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: “Allar uppsprettur mínar eru í þér.” |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/087.mp3
150
87