×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 89

1
Etansmaskíl Esraíta.
2
Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu og kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns.
3
Því að ég segi: Náð þín er traust að eilífu, trúfesti þín grundvölluð á himni.
4
Ég gerði sáttmála við minn útvalda, vann Davíð þjóni mínum eið:
5
Ég mun festa ætt þína í sessi að eilífu og hásæti þitt reisi ég frá kyni til kyns.
6
Himnarnir lofa dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína.
7
Því að hver er í upphæðum jafn Drottni og hver af guðanna sonum er Drottni líkur?
8
Guð er ógnvekjandi í hópi heilagra, meiri og óttalegri öllum sem eru umhverfis hann.
9
Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú? Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín umlykur þig.
10
Þú ríkir yfir ofstopa hafsins, þú lægir rísandi öldurnar,
11
þú knosaðir skrímslið Rahab til dauða og tvístraðir óvinum þínum með voldugum armi.
12
Þinn er himinninn, þín er jörðin, þú grundvallaðir heiminn og allt sem í honum er.
13
Norðrið og suðrið skapaðir þú, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.
14
Armur þinn er máttugur, hönd þín sterk, hægri hönd þín hátt upp hafin.
15
Réttlæti og réttvísi eru stoðir hásætis þíns, miskunn og trúfesti þjóna fyrir augliti þínu.
16
Sæl er sú þjóð sem kann að hylla þig, Drottinn, sem gengur í ljóma auglitis þíns,
17
fagnar yfir nafni þínu hvern dag og gleðst yfir réttlæti þínu.
18
Því að þú ert prýði hennar og máttur og fyrir velþóknun þína er horn vort hafið.
19
Því að skjöldur vor heyrir Drottni til og konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.
20
Áður fyrr talaðir þú í sýn til þeirra sem treystu þér og sagðir: „Ég hef sett kórónu á kappa, upphafið ungan mann af lýðnum.
21
Ég fann þjón minn Davíð, smurði hann með minni heilögu olíu.
22
Hönd mín mun styðja hann og armur minn styrkja hann.
23
Enginn óvinur mun yfirbuga hann og enginn ofbeldismaður beygja hann,
24
í augsýn hans mun ég brjóta andstæðinga hans á bak aftur, gera út af við hatursmenn hans.
25
Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum og vegna nafns míns mun horn hans hátt upp hafið.
26
Ég legg hönd hans á hafið, hægri hönd hans á fljótin.
27
Hann mun hrópa til mín: Þú ert faðir minn, Guð minn, og klettur hjálpræðis míns.
28
Ég geri hann að frumburði mínum, að hinum æðsta meðal konunga jarðar.
29
Ég mun varðveita miskunn mína við hann að eilífu, sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.
30
Ég mun viðhalda ætt hans um aldur og hásæti hans meðan himinninn stendur.
31
Hverfi synir hans frá lögmáli mínu, fylgi þeir ekki reglum mínum,
32
vanhelgi lög mín og haldi ekki boðorð mín,
33
þá mun ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum
34
en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.
35
Ég mun ekki vanhelga sáttmála minn og ekki taka það aftur sem mér hefur af vörum liðið.
36
Eið sór ég við heilagleika minn: Ég mun aldrei bregðast Davíð.
37
Ætt hans skal haldast við um aldur og ævi og hásæti hans sem sólin frammi fyrir mér,
38
það skal standa að eilífu sem tunglið, hið trausta vitni ofar skýjum.“
39
En nú hefur þú hafnað þínum smurða, útskúfað honum í reiði þinni,
40
þú hefur rift sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt til jarðar.
41
Þú braust niður alla varnarmúra hans og lagðir virki hans í rúst.
42
Allir vegfarendur ræna hann og grannar hans hæða hann.
43
Þú hefur hafið hægri hönd óvina hans og glatt alla fjandmenn hans.
44
Þú snerir sverðseggjum hans undan og studdir hann ekki í stríðinu.
45
Þú eyddir vegsemd hans og steyptir hásæti hans til jarðar.
46
Þú hefur stytt æskudaga hans og hulið hann smán.
47
Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín að loga sem eldur?
48
Minnstu þess hve ævi mín er stutt og til hvílíks fánýtis þú hefur skapað mennina.
49
Hver er sá er lifir og sér eigi dauðann, hver heimtir líf sitt úr greipum heljar?
50
Hvar eru fyrri náðarverk þín, Drottinn, sem þú sórst Davíð í trúfesti þinni?
51
Minnstu, Drottinn, háðungar þjóna þinna, á mér hvílir háð margra þjóða
52
sem fjandmenn þínir smánuðu þig með, Drottinn, og vanvirtu fótspor þíns smurða.
53
Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar