|
| 1 |
|
| Til söngstjórans. Almút labben. Davíðssálmur. |
|
| 2 |
|
| Ég vil þakka þér, Drottinn, af öllu hjarta, kunngjöra öll máttarverk þín. |
|
| 3 |
|
| Ég vil gleðjast og fagna yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti. |
|
| 4 |
|
| Þegar fjandmenn mínir hörfuðu hrösuðu þeir og fórust fyrir augliti þínu. |
|
| 5 |
|
| Þú lést mig ná rétti mínum og dæmdir mér í hag, settist í hásæti þitt sem réttlátur dómari. |
|
| 6 |
|
| Þú ógnaðir þjóðum, eyddir óguðlegum, afmáðir nafn þeirra um aldur og ævi. |
|
| 7 |
|
| Fjandmanninum er eytt, tortímt að eilífu, þú hefur brotið borgir, enginn minnist þeirra. |
|
| 8 |
|
| Drottinn er sestur að völdum að eilífu, hann hefur reist hásæti sitt til dóms. |
|
| 9 |
|
| Hann dæmir heiminn með réttvísi, fellir réttlátan dóm yfir þjóðunum. |
|
| 10 |
|
| Drottinn er vörn hinum kúgaða, vígi á neyðartímum, |
|
| 11 |
|
| þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. |
|
| 12 |
|
| Lofsyngið Drottni sem býr á Síon, kunngjörið stórvirki hans á meðal þjóðanna |
|
| 13 |
|
| því að hann, sem blóðs hefnir, hefur minnst þeirra, hann gleymir ekki hrópi hinna hrjáðu. |
|
| 14 |
|
| Vertu mér miskunnsamur, Drottinn. Sjáðu eymdina sem óvinir mínir valda mér, þú, sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans |
|
| 15 |
|
| svo að ég geti rakið öll stórvirki þín, fagnað yfir hjálp þinni í hliðum dótturinnar Síonar. |
|
| 16 |
|
| Þjóðir féllu í þá gryfju sem þær grófu, fótur þeirra flæktist í netinu sem þær lögðu. |
|
| 17 |
|
| Drottinn gerði sig kunnan, hann setti rétt, hinn óguðlegi festist í eigin snöru. |
|
| 18 |
|
| Guðlausir hrapa til heljar, allar þjóðir sem gleyma Guði. |
|
| 19 |
|
| En hinn snauði er ekki gleymdur að eilífu, von hinna hrjáðu bregst ekki sífellt. |
|
| 20 |
|
| Rís upp, Drottinn, lát ekki mennina ná völdum, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu. |
|
| 21 |
|
| Lát ótta yfir þær koma, Drottinn, gerðu þeim ljóst að þær eru dauðlegar. |
|
|
|
|