Biblían 2007
|
| 1 |
| Bæn guðsmannsins Móse. Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns. |
| 2 |
| Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð. |
| 3 |
| Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir: „Hverfið aftur, þér mannanna börn.“ |
| 4 |
| Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka. |
| 5 |
| Þú hrífur þau burt sem í svefni, þau er að morgni eru sem gróandi gras. |
| 6 |
| Að morgni blómgast það og grær, að kvöldi fölnar það og visnar. |
| 7 |
| Vér hverfum fyrir reiði þinni, skelfumst bræði þína. |
| 8 |
| Þú hefur sett þér fyrir sjónir misgjörðir vorar og leyndar syndir fyrir ljós auglitis þíns. |
| 9 |
| Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni, ár vor líða sem andvarp. |
| 10 |
| Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár, og dýrasta hnossið er mæða og hégómi, því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt. |
| 11 |
| Hver skilur mátt reiði þinnar, heift þína, svo að hann óttist þig? |
| 12 |
| Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta. |
| 13 |
| Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi? Sýn þjónum þínum miskunn. |
| 14 |
| Metta oss að morgni með miskunn þinni, að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora. |
| 15 |
| Veit oss gleði í stað daga þeirra er þú lægðir oss, ára þeirra er vér máttum illt þola. |
| 16 |
| Sýn þjónum þínum dáðir þínar og dýrð þína börnum þeirra. |
| 17 |
| Gæska Drottins, Guðs vors, sé með oss, blessa þú verk handa vorra. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/090.mp3
150
90