Biblían 1981
|
| 1 |
| Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir íklæðst hátign, Drottinn hefir skrýðst, hann hefir spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi. |
| 2 |
| Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú. |
| 3 |
| Straumarnir hófu upp, Drottinn, straumarnir hófu upp raust sína, straumarnir hófu upp dunur sínar. |
| 4 |
| Drottinn á hæðum er tignarlegri en gnýr mikilla, tignarlegra vatna, tignarlegri en boðar hafsins. |
| 5 |
| Vitnisburðir þínir eru harla áreiðanlegir, húsi þínu hæfir heilagleiki, ó Drottinn, um allar aldir. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/093.mp3
150
93