×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 95

1
Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.
2
Göngum fyrir auglit hans með þakkargjörð, syngjum gleðiljóð fyrir honum.
3
Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.
4
Í hendi hans eru jarðardjúpin og fjallatindarnir heyra honum til,
5
hans er hafið, hann hefur skapað það og hendur hans mynduðu þurrlendið.
6
Komið, föllum fram og tilbiðjum, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum.
7
Því að hann er vor Guð og vér erum gæslulýður hans, hjörðin sem hann gætir. Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans:
8
Herðið ekki hjörtu yðar eins og við Meríba, eins og daginn hjá Massa í eyðimörkinni
9
þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig þó að þeir sæju verk mín.
10
Í fjörutíu ár bauð mér við þessari kynslóð og ég sagði: „Hjarta þessa fólks hefur villst af leið, það ratar ekki vegu mína.“
11
Ég sór því í reiði minni: „Þeir skulu eigi ná til hvíldarstaðar míns.“
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar