Biblían 1981
|
| 1 |
| Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors. |
| 2 |
| Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum. |
| 3 |
| Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum. |
| 4 |
| Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til. |
| 5 |
| Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið. |
| 6 |
| Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum, |
| 7 |
| því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans! |
| 8 |
| Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni, |
| 9 |
| þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín. |
| 10 |
| Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: “Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína.” |
| 11 |
| Þess vegna sór ég í reiði minni: “Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.” |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/095.mp3
150
95