Biblían 2007
|
| 1 |
| Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni, öll lönd, |
| 2 |
| syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. |
| 3 |
| Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða |
| 4 |
| því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegri öllum guðum. |
| 5 |
| Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir en Drottinn hefur gert himininn, |
| 6 |
| dýrð og hátign eru frammi fyrir honum, máttur og prýði í helgidómi hans. |
| 7 |
| Tignið Drottin, þér ættir þjóða, tignið Drottin með dýrð og mætti, |
| 8 |
| tignið Drottin, heiðrið nafn hans, færið fórn og komið til forgarða hans. |
| 9 |
| Fallið fram fyrir heilagri hátign Drottins, öll jörðin skjálfi frammi fyrir honum. |
| 10 |
| Boðið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur. Jörðin er á traustum grunni, hún bifast ekki. Hann dæmir þjóðirnar með réttvísi. |
| 11 |
| Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er, |
| 12 |
| foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins fagni með þeim |
| 13 |
| fyrir augliti Drottins því að hann kemur, hann kemur til að ríkja á jörðu, hann mun stjórna heiminum með réttlæti og þjóðunum af trúfesti sinni. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/096.mp3
150
96