Biblían 2007
|
| 1 |
| Drottinn er konungur, jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist. |
| 2 |
| Ský og sorti umlykja hann, réttlæti og réttur eru grundvöllur hásætis hans. |
| 3 |
| Eldur fer fyrir honum og eyðir fjandmönnum hans allt um kring. |
| 4 |
| Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar, |
| 5 |
| björgin bráðna sem vax fyrir augliti Drottins, frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar. |
| 6 |
| Himnarnir kunngjöra réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans. |
| 7 |
| Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir sem stæra sig af falsguðum. Allir guðir munu falla fram fyrir honum. |
| 8 |
| Síon heyrir þetta og gleðst og dætur Júda fagna yfir dómum þínum, Drottinn. |
| 9 |
| Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni, mjög hátt hafinn yfir alla guði. |
| 10 |
| Þér, sem elskið Drottin, hatið illt. Hann verndar dýrkendur sína, frelsar þá úr hendi óguðlegra. |
| 11 |
| Ljós skín réttlátum og gleði hjartahreinum. |
| 12 |
| Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/097.mp3
150
97